Ég heiti Stefán Gunnar og er frábær sjö ára gamall pjakkur- My name is Stefan Gunnar and I am seven. Bróðir minn heitir Birgir Hrafn og hann er sætur tveggja ára snáði - Birgir Hrafn is my brother and he is two years old.
Ég fæddist á fæðingardeild Landspítala háskólasjúkrahúss kl. 14:03, fimmtudaginn 20. maí 2004 og var 15 merkur og 53 sm. Mér lá ekkert á að koma í heiminn, ég átti að koma 26. maí og ætlaði mér að standa við það. Pabbi og mamma vildu hinsvegar ólm fá að sjá mig. Þau voru búin að bíða og bíða og bíða og bíða og telja dagana í níu mánuði. Þau fóru út í langa göngutúra á kvöldin, dönsuðu í stofunni, hlógu mikið og spjölluðu við mig í gegnum naflann á mömmu. Um einni viku fyrir fæðinguna, ákvað ég að grípa til minna ráða, þegar allt var að fara af stað, snéri mér í hálfhring og settist ofan á útgönguleiðina. Mér leið ákaflega vel í maganum á mömmu og gat kúrt og lúllað eins mikið og ég vildi.
Ég er samt svo hlýðinn og ljúfur drengur og ákvað að stríða pabba og mömmu ekki frekar og skellti mér aftur í höfuðstöðu nokkrum dögum síðar. Þrátt fyrir að sá gamli segði oft ansi slappa brandara í gegnum naflann á kvöldin, þá vildi ég komast í fangið hennar mömmu og sjá öll leikföngin, sem pabbi var búinn að lofa. Eftir maraþon göngutúr að kvöldi 19. maí brast vatnið um kl. 02:00 og við mamma og pabbi brunuðum í sjúkrabíl upp á fæðingardeild. Ég átti ekki að fæðast alveg strax og af þeim sökum var ég ekki búinn að koma mér almennilega í stellingar þegar kom að sjálfri fæðingunni. Mamma, pabbi og læknarnir ákváðu eftir 12 tíma í fæðingu að best væri að fara í keisaraskurð. Viti menn, 10 mínútum seinna kom einhver hendi inn í mallann hennar mömmu og kippti mér út, júúhúúúúú.
Dear friends, welcome to my website. You can choose either an English or Danish setting for this site if you want to see what I am up to. You do need a password, just click one of the links and send an email to my mom or dad and request one.
Best regards,
Stefan Gunnar
Fjölskyldan að hlutsta á Eyva syngja við varðeld í Húsafelli.
